top of page
Search

Næstu mót

Updated: Sep 17

Keppnistímabilið er farið af stað af fullum krafti og búið að opna fyrir skráningu í næstu mót á dagskránni. Hvetjum við keppnisglaða BH-inga til að kynna sér málið og taka þátt. Upplýsingar um næstu mót vetrarins má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Haustmót trimmara - 29. sept 2024


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Trimmflokkur - 18 ára og eldri sem ekki eru í úrvals eða 1. deild og aldrei hafa verið skráðir í úrvalsdeild/meistaraflokk.


Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í tvíliðaleik og leikmenn dregnir saman í hverri umferð. Leiknar verða amk 5 umferðir. Keppni hefst klukkan 11:00.


Mótsgjöld: 4.000 kr á mann og greiðist á staðnum


Skráning: Skráning fer fram á staðnum. Mælum með að mæta tímanlega.


Unglingamót TBS á Siglufirði - 4.-6.okt 2024


BH fer í hópferð með rútu norður á þetta mót. Vonum að sem flestir iðkendur geti farið með í þessa skemmtilegu ferð. Þetta er eina keppnisferðin á hverjum vetri þar sem er gist og því um að gera að nýta tækifærið.


Staðsetning: Íþróttahúsið á Siglufirði


Dagsetning: 4.-6.október 2024


Flokkar og keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í einliða og tvíliðaleik í riðlum í U11-U19 flokkunum. Hentar fyrir bæði styttra og lengra komna þar sem skipt er í riðla eftir getu. Allir þátttakendur þurfa að þekkja reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum.


Kostnaður:

Kostnaður á hvern iðkanda er 30.000 kr og er innifalið í því rúta, mótsgjöld, sund, gisting, morgunverður laugardag og sunnudag og kvöldmatur föstudag og laugardag. Fyrir utan það þurfa krakkarnir að hafa með sér nesti og vasapening til að kaupa sér annan mat en þann sem er innifalinn. Hægt er að skipta kostnaði upp í nokkrar greiðslur ef þörf er á. 


Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 25. september.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


TBR OPIÐ - 5.-6.okt 2024


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í riðlum í tvíliða- og tvenndarleik en útsláttur verður í einliðaleik.


Mótsgjöld: 5.000 kr í einliðaleik og 4000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 25.september.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.



Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Sportabler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Sportabler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


Nýtt keppnisfyrirkomulag verður á unglingamótum í vetur. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2024-2025 U9 - fædd 2016 og síðar U11 - fædd 2014 og 2015 U13 - fædd 2012 og 2013 U15 - fædd 2010 og 2011 U17 - fædd 2008 og 2009 U19 - fædd 2006 og 2007



Comments


bottom of page