top of page
Search

Næstu mót

Updated: Mar 10, 2022

Vorum að opna fyrir skráningu í tvö næstu mót. Hvetjum keppnisglaða til að skrá sig innan uppgefins skráningarfrests. Nánari upplýsingar um dagskrá vetrarins og mót almennt má finna neðst í þessari frétt.


Meistaramót Reykjavíkur - 19.-20.mars 2022


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Úrvalsdeild, 1.deild og 2.deild fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri (hægt að sækja um undanþágu fyrir mjög vana U15 spilara).


Keppnisfyrirkomulag: Keppt er í riðlum í einliðaleik og fara tveir uppúr hverjum riðli í útsláttarkeppni. Hrein útsláttarkeppni í tvíliða- og tvenndarleik.


Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða og tvenndarleik.


Skráningu lýkur: Sunnudaginn 13.mars.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði.


Íslandsmót unglinga - 25.-27.mars 2022


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog

Flokkar: U11-U19 - Keppt í bæði A og B getustigi í einliðaleik, B fyrir þau sem ekki hafa unnið til verðlauna á opnum mótum og A fyrir aðra. Ekki getuskipt í tvíliða- og tvenndarleik. Þátttakendur þurfa að hafa keppt áður, kunna leikreglurnar og treysta sér til að vera teljarar í leikjum hjá öðrum keppendum.


Keppnisfyrirkomulag: Spilað verður í riðlum í einliðaleik og fer sigurvegari hvers riðils áfram í útsláttarkeppni. Allir fá því a.m.k. tvo leiki í einliðaleik. Hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik og því einhverjir sem fá bara einn leik í þessum greinum..


Mótsgjöld: 2.000 kr fyrir einliðaleik og 1.800 kr fyrir tvíliða- og tvenndarleik í U13-U19. 1.800 kr fyrir einliðaleik í U11 og 1.500 kr á mann fyrir tvíliða- og tvenndarleik í U11.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur þriðjudaginn 15.mars.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2021-2022 U9 - fædd 2013 og síðar U11 - fædd 2011 og 2012 U13 - fædd 2009 og 2010 U15 - fædd 2007 og 2008 U17 - fædd 2005 og 2006 U19 - fædd 2003 og 2004



Comments


bottom of page