Keppnistímabilið í badminton fer af stað aftur af fullum krafti í janúar eftir stutt jólafrí. Hvetjum keppnisglaða til að skrá sig innan uppgefins skráningarfrests. Nánari upplýsingar um dagskrá vetrarins og mót almennt má finna neðst í þessari frétt.
Jólamót trimmara - 2.janúar 2022 - FRESTAÐ
Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog
Flokkar: Trimmflokkur - Opið fyrir badmintontrimmara 18 ára og eldri
Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í tvíliðaleik. Leikmenn eru dregnir saman í hverri umferð. Keppni hefst klukkan 11:00.
Mótsgjöld: 3.000 kr á mann.
Skráning: Skráning fer fram á staðnum.
Meistaramót TBR - 8.-9.janúar 2022
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog
Flokkar: Úrvalsdeild, 1.deild og 2.deild fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri (hægt að sækja um undanþágu fyrir mjög vana U15 spilara).
Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í riðlum í einliðaleik en hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik.
Mótsgjöld: 3500 kr fyrir einliðaleik og 3000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik.
Skráningu lýkur: Miðvikudaginn 29.desember.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram hér: https://forms.gle/phypgYQafMQhDcHj6
Gríslingamót ÍA - 16.janúar 2022 - FRESTAÐ
Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi
Flokkar: U9 (fædd 2013 og síðar) og U11 (fædd 2011 og 2012). Hentar vel fyrir alla sem kunna ágætlega reglurnar og finnst gaman að keppa.
Keppnisfyrirkomulag: Gert er ráð fyrir að U9 spili kl. 10-12 og U11 spili kl. 13-15. En
tímasetningar koma betur í ljós þegar skráningar hafa borist. Skipt er í lið og spila allir einliðaleik. Hefur verið mjög skemmtilegt mót undanfarin ár og hentar fyrir bæði lengra og styttra komna.
Mótsgjöld: 1.000 kr á mann - allir fá glaðning í mótslok
Skráningu lýkur: Miðvikudaginn 12.janúar
Skráning: Skráning hefst í janúar og fer fram í Sportabler.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2021-2022 U9 - fædd 2013 og síðar U11 - fædd 2011 og 2012 U13 - fædd 2009 og 2010 U15 - fædd 2007 og 2008 U17 - fædd 2005 og 2006 U19 - fædd 2003 og 2004
Comments