Framundan eru tvö unglingamót sem BH-ingar geta skráð sig í með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum keppnisglaða til að taka þátt.
Unglingameistaramót Þórs - 29.febrúar Staðsetning: Íþróttamiðstöðin í Þorlákshöfn Flokkar: U9-U19 B. Mótið hentar vel fyrir þau sem ekki hafa keppt áður því þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki taka þátt. Keppnisfyrirkomulag: Í U9-U11 verður keppt í einliðaleik í geturöðuðum riðlum. Hentar því vel fyrir byrjendur. Í U13-U19 verður keppt í einliða- og tvíliðaleik en fyrirkomulag ræðst af þátttöku. Fámennir flokkar gætu verið sameinaðir. Frítt í sund að keppni lokinni. Mótsgjöld: 1500 kr fyrir einliðaleik og 1200 kr fyrir tvíliðaleik. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 23.febrúar.
Íslandsmót unglinga - 20.-22.mars
Staðsetning: Íþróttamiðstöðin Varmá í Mosfellsbæ
Flokkar: U13-U19 A og B og U11A Keppnisfyrirkomulag: Í einliðaleik verða A og B flokkar í U13-U19. Í U11 flokknum verður bara einn flokkur í einliðaleik. Í öllum flokkum í einliðaleik verður keppt í riðlum. Verður leitast eftir því að spila í 3ja manna riðlum þar sem einn kemst áfram og er svo hreinn útsláttur þar á eftir. Þar sem bæði er keppt í A og B flokki geta bæði byrjendur og lengra komnir tekið þátt. Ekki er þó mælt með að þau sem aldrei hafa keppt áður taki þátt í þessu móti. Mótsgjöld: 1.800 kr fyrir einliðaleik í U11, 2.000 kr fyrir einliðaleik í U13-U19 og 1.500 kr fyrir tvíliða- og tvenndarleik í U11-U19. Skráningu lýkur: Föstudaginn 6.mars
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2019-2020 U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001
Comments