top of page
Search

Næstu mót

Updated: Feb 14, 2020

Framundan eru nokkur badmintonmót sem BH-ingar geta skráð sig í með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum keppnisglaða til að taka þátt.


Landsbankamót ÍA - 15.-16.febrúar

Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi

Flokkar: Keppt verður í U13-U19, getuskipt í A og B í einliðaleik en ekki getuskipt í tvíliða- og tvenndarleik. Einnig verður keppt í U11 en bara í einliðaleik og ekki getuskipt í A og B. Spilað til verðlauna í U11 en allir fá viðurkenningu fyrir þátttökuna.

Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliða en beinn útsláttur í öðrum greinum. Keppni hefst kl.9 báða dagana. U11 spilar á laugardeginum.

Mótsgjöld: 2000 kr í einliðaleik og 1800 kr í tvíliða- og tvenndarleik. 1000 kr í einliðaleik í U11. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 9.febrúar.


Óskarsmót KR - 22.-23.febrúar

Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri.

Keppnisfyrirkomulag: Hreinn útsláttur í öllum greinum og flokkum en aukaflokkur í einliðaleik í A og B flokki. Keppt í tvíliða-og tvenndarleik á laugardag en einliðaleik á sunnudag.

Mótsgjöld: 2500 kr á mann í hverja grein

Skráningu lýkur: Laugardaginn 15.febrúar


Unglingameistaramót Þórs - 29.febrúar

Staðsetning: Íþróttamiðstöðin í Þorlákshöfn

Flokkar: U9-U19 B. Mótið hentar vel fyrir þau sem ekki hafa keppt áður því þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki taka þátt.

Keppnisfyrirkomulag: Í U9-U11 verður keppt í einliðaleik í geturöðuðum riðlum. Hentar því vel fyrir byrjendur. Í U13-U19 verður keppt í einliða- og tvíliðaleik en fyrirkomulag ræðst af þátttöku. Fámennir flokkar gætu verið sameinaðir. Frítt í sund að keppni lokinni.

Mótsgjöld: 1500 kr fyrir einliðaleik og 1200 kr fyrir tvíliðaleik. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 23.febrúar.


Deildakeppni BSÍ - 6.-8.mars

Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Íslandsmót liða. Þjálfarar BH raða í lið og reyna að koma öllu vönu keppnisfólki að sem vilja vera með.

Mótsgjöld: 5.000 kr á mann

Skráningu lýkur: Sunnudaginn 16.febrúar


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2019-2020

U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001



Comments


bottom of page