Framundan eru tvö badmintonmót sem BH-ingar geta skráð sig í með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum keppnisglaða til að taka þátt.
Meistaramót TBR - 11.-12.janúar
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog
Flokkar: Meistara-, A og B flokkur fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri.
Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliða en beinn útsláttur í öðrum greinum.
Mótsgjöld: 3500 kr í einliðaleik og 3000 kr í tvíliða- og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 5.janúar
Gríslingamót ÍA - 19.janúar
Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi Flokkar: U9 og U11 (krakkar fædd 2009 og síðar) - hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna
Keppnisfyrirkomulag: Krökkunum verður skipt upp í lið og verður haldin skemmtileg keppni milli liða í einliðaleik. Geturaðað er í lið svo að flestir ættu að fá einhverja jafna leiki. Gert er ráð fyrir að U9 (fædd 2011 og síðar) spili kl. 10-12 og U11 (fædd 2009 og 2010) spili kl. 13-15. En tímasetningar koma betur í ljós þegar skráningar hafa borist.
Mótsgjöld: 500 kr - allir fá glaðning fyrir þátttökuna
Skráningu lýkur: Miðvikudaginn 15.janúar
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2019-2020
U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001
Comments