Framundan eru tvö badmintonmót sem BH-ingar geta skráð sig á með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum alla keppnisglaða til að vera með.
Jólamót unglinga - 21.desember
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog
Flokkar: U13-U19A - hentar ekki fyrir þau sem ekki hafa keppt áður
Keppnisfyrirkomulag: Keppni hefst klukkan 10:00. Spilaður verður einliðaleikur í riðlum.
Mótsgjöld: 2000 kr á mann Skráningu lýkur: Mánudaginn 16.desember
Jólamót trimmara - 29.desember
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog Flokkar: Trimmarar 18 ára og eldri sem ekki keppa í A og hafa ekki verið í m.fl.
Keppnisfyrirkomulag: Keppt í tvíliðaleik þar sem leikmenn eru dregnir saman í hverri umferð. Keppni hefst klukkan 11:00.
Mótsgjöld: 3000 kr.
Skráning á staðnum.
Almennt um mót
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.
Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2019-2020
U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001
