Næstu mót
- annaliljasig
- Apr 11, 2019
- 2 min read
Updated: Apr 13, 2019
Það eru þrjú mót eftir á mótaskrá BSÍ þennan veturinn. Eitt trimmmót og tvö barna- og unglingamót en þau fara einmitt fram hjá okkur í Strandgötunni. BH-ingar geta skráð sig með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Iðkendur í öðrum félögum skrá sig hjá þeim.
Bikarmót BH - 26.-28.apríl Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu Flokkar: U11-U19 - hentar fyrir öll getustig Keppnisfyrirkomulag: Keppt er í 3-5 manna riðlum í einliðaleik. Skipt er í riðla eftir getu og fær sigurvegari í hverjum riðli bikar. Hver flokkur keppir aðeins einn dag og verður dagskrá gefin út 22.apríl. Mótsgjöld: 2.000 kr á mann Skráningu lýkur: Miðvikudaginn 17.apríl
Snillingamót BH - 4.maí Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu Flokkar: U9-U11 - hentar fyrir öll getustig Keppnisfyrirkomulag: Keppt er í riðlum í einliðaleik á hálfum velli. Allir spila 3-5 leiki og leitast verður við að allir fá andstæðinga við hæfi. Allir fá glaðning í mótslok.
U9 (fædd 2010 og síðar) - mæta kl.09:45 - spila kl.10:00-12:30
U11 (fædd 2008 og 2009) - mæta kl.12:45 - spila kl.13:00-15:30
Mótsgjöld: 1.000 kr á mann Skráningu lýkur: Þriðjudaginn 30.apríl
Vormót trimmara - 5.maí Staðsetning: TBR húsið Flokkar: Trimmflokkur - Badmintontrimmarar eru 18 ára og eldri leikmenn, sem ekki eru í A-flokki og aldrei hafa verið skráðir í meistaraflokk. Keppnisfyrirkomulag: Keppni hefst kl. 11.00 í einliðaleik, en um kl. 13.00 má ætla að keppni í tvíliðaleik geti hafist. Tvenndarleikurinn verður þar á eftir. Þeir sem tapa fyrsta leik fara í aukaflokk. Mótsgjöld: 3500 kr í einliðaleik og 3000 kr í tvíliða- og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Mánudaginn 29.apríl
Almennt um mót
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.
Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019
U9 - fædd 2010 og síðar
U11 - fædd 2008 og 2009
U13 - fædd 2007 og 2006
U15 - fædd 2005 og 2004
U17 - fædd 2003 og 2002
U19 - fædd 2001 og 2000

Comments