Golfmót BH
- Aug 20
- 1 min read
Margir BH-ingar eru duglegir að spila golf á sumrin en skipta svo yfir í spaðann á veturna. Þar sem golfsumarið er senn á enda og badmintonveturinn að hefjast ætlum við að skella í lítið sætt golfmót í Vogunum sunnudaginn 30.ágúst
Spilaðar verða 9 holur með Texas Scramble fyrirkomulagi og raðar mótsstjórn í 2 manna lið. Mótið er opið öllum BH-ingum á meðan pláss leyfir. Eigum bókaða 12 rástíma frá 14:30-16:20. Skráningargjald sem greiðist við skráningu hér í Abler er 1.000 kr en einnig þarf að greiða vallargjald þegar mætt er á staðinn. Fullt vallargjald er 4900 KR en sumir gætu átt rétt á afslætti í gegnum sinn golfklúbb.
Skráningu lýkur sunnudaginn 23.ágúst.
Vonandi að sem flestir badmintongolf BH-ingar geti verið með.





Comments