Meistaramót Íslands í badminton fór fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu dagana 26.-29.apríl. Á mótinu var keppt um Íslandsmeistaratitla í fullorðinsflokkum. Sögulegur árangur náðist á mótinu en Gerda Voitechovskaja sigraði í einliðaleik kvenna í úrvalsdeild og er þetta í fyrsta sinn sem leikmaður BH sigrar í einliðaleik í efsta flokki. BH-ingurinn Erla Björg Hafsteinsdóttir hefur unnið fjóra Íslandsmeistaratitla fyrir BH þrjá í tvíliðaleik 2009, 2014 og 2019 og einn í tvenndarleik árið 2018.
Til keppni voru skráðir 132 leikmenn, þar af 41 frá BH. Átta Íslandsmeistaratitlar komu í hlut okkar fólks á mótinu og 12 silfurverðlaun. Katla Sól Arnarsdóttir náði þeim frábæra árangri að sigra tvöfallt í 1.deild, bæði í einliða- og tvíliðaleik.
Íslandsmeistarar BH eru:
Gerda Voitechovskaja, einliðaleikur kvenna í úrvalsdeild
Katla Sól Arnarsdóttir, einliða- og tvíliðaleikur kvenna í 1.deild
Anna Lilja Sigurðardóttir, tvíliðaleikur kvenna í 1.deild
Jón Víðir Heiðarsson, tvíliðaleikur karla í 2.deild
Jón Sverrir Árnason, tvíliðaleikur karla í 2.deild
Lena Rut Gígja, tvíliðaleikur kvenna í 2.deild
Elín Helga Einarsdóttir, tvíliðaleikur kvenna í 2.deild
Silfurverðlaunahafar BH eru:
Sólrún Anna Ingvarsdóttir, tvíliðaleikur kvenna í úrvalsdeild
Una Hrund Örvar, tvíliðaleikur kvenna í úrvalsdeild
Natalía Ósk Óðinsdóttir, einliðaleikur kvenna í 1.deild
Ólafur Örn Guðmundsson, einliðaleikur karla í 1.deild
Lena Rut Gígja, einliðaleikur kvenna í 2.deild
Elín Ósk Traustadóttir, tvíliðaleikur kvenna í 2.deild
Hrafn Örlygsson, einliða- og tvíliðaleikur karla í 2.deild
Kári Þórðarson, tvíliðaleikur karla í 2.deild
Jón Víðir Heiðarsson, tvenndarleikur í 2.deild
Erla Rós Heiðarsdóttir, tvíliða- og tvenndarleikur í 2.deild
Nánari úrslit mótsins má finna hér á tournamentsoftware.com og myndir á Facebooksíðu BH.
BSÍ hélt mótið í samstarfi við BH og gekk það mjög vel. Fengu mótshaldarar mikið hrós fyrir glæsilega umgjörð í Strandgötu.
Til hamingju verðlaunahafar og takk öll sem lögðu hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd mótsins.
Comentários