Helgina 24.-26.september ætlum við að fara til Siglufjarðar til að taka þátt í Unglingamóti TBS.
Keppt verður í unglingaflokkunum U11-U19 og verður rútuferð á vegum BH norður. Þetta er alltaf skemmtileg ferð sem við mælum með fyrir alla sem hafa einhverja reynslu af því að keppa. Þetta er eina keppnisferðin á hverjum vetri þar sem er gist og því um að gera að nýta tækifærið.
Dagskrá
Mótið hefst klukkan 9:00 bæði laugardag og sunnudag en nánari dagskrá verður ljós þegar skráningu lýkur. Reiknað er með brottför frá Strandgötu í kringum hádegi á föstudag og heimkomu um klukkan 22 á sunnudag.
Keppnisfyrirkomulag
Keppt er í A flokkum unglinga og því hentar mótið ekki vel fyrir þau sem ekki hafa keppt áður. Í einliðaleik verður spilað í riðlum en hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Ekki er keppt í tvenndarleik í U11.
Gisting
BH hefur leigt sal stéttarfélagsins Einingar - Iðju á Siglufirði fyrir hópinn sem er í göngufæri frá íþróttahúsinu. Allir þurfa að taka með sér vinsæng/dýnu og svefnpoka/sæng.
Kostnaður
Kostnaður á hvern iðkanda er 20.000 kr og er innifalið í því rúta, mótsgjöld, gisting, morgunverður og kvöldmatur föstudag og laugardag. Fyrir utan það þurfa krakkarnir að hafa með sér nesti og vasapening til að kaupa sér annan mat en þann sem er innifalinn. Hægt er að skipta kostnaði upp í nokkrar greiðslur ef þörf er á. Þá á félagið einnig sjóð styrktan af lyfjafyrirtækinu Williams & Halls til að aðstoða þá sem eiga í vandræðum með greiðsluna.
Þjálfarar og fararstjórar
BH sendi þjálfara með hópnum sem jafnframt eru fararstjórar. Ef einhverjir foreldrar vilja bjóða sig fram í fararstjórn mega þeir gjarnan hafa samband við Önnu Lilju í síma 8686361 eða netfangið bhbadminton@hotmail.com.
Skráning
Foreldrar þurfa að skrá sín börn á þessu skráningarformi eigi síðar en á föstudaginn 17.september kl.13:00. Mikilvægt að taka fram ef taka þarf tillit til ofnæmis eða óþols fyrir einhverjum mat eða annað sem er nauðsynlegt fyrir þjálfara að vita um.
Vonum að sem flestir geti farið með í þessa skemmtilegu ferð.
Kommentare