Dagskráin um helgina
- annaliljasig
- May 6
- 2 min read
Updated: May 8
Helgina 9.-11.maí keppa 238 börn og ungmenni í badminton í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Leikmenn í U9 og U11 flokkunum spila í einliðaleik á hálfum velli á Snillingamóti BH og leikmenn í U13-U19 flokkunum í tvíliða- og tvenndarleik á Unglingamóti BH. Keppendur koma frá sjö félögum BH, Hamar, ÍA, TBR, TBS, UMFA og Þrótti Vogum. Aldrei hafa fleiri skráð sig í barna- og unglingamót BH en metskráning var einnig í fyrra þegar 220 voru skráð.
Vegna keppninnar falla æfingar niður á föstudag eftir kl.16 og sunnudag milli kl.10 og 16.
Gróf dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Föstudagur 9 .maí
kl.16:30-22 - Tvíliðaleikur U15-19
Laugardagur 10. maí
kl.9-11 - U9 Snillingamót
kl.11:30-19 - U13 tvíliðaleikur og U17-U19 tvenndarleikur
Sunnudagur 11. maí
kl.9-11:30 - U11 Snillingamót
kl.12:00-17 - U13 og U15 tvenndarleikur
Þátttakendur í Snillingamótinu fyrir U9 og U11 mæta kl.8:45 í síðasta lagi og byrja að spila kl.9:00. Allir spila 3-5 lotur í 21 stig og fá svo sumarglaðning í mótslok sem eru áætluð milli kl.11 og 11:30.
Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja á Unglingamótinu fyrir U13-U19 eru komnar á tournamentsoftware.com. Eins og venjulega er dagskráin birt með fyrirvara um nauðsynlegar breytingar t.d. vegna forfalla eða mistaka. Ef ýtt er á nafn leikmanns sjást allir leikir viðkomandi á mótinu. Gott er að kíkja aftur á dagskrána kvöldið fyrir keppni ef einhverjar breytingar hafa orðið á tímasetningum. Mælum með að leikmenn í U13-U19 mæti 30 mínútum fyrir áætlaðan leiktíma í hús til að hita upp og gera sig klár fyrir keppni.
Mjög mikilvægt er að láta þjálfara vita ef upp koma veikindi eða önnu forföll svo hægt sé að bregðast við því. Einnig hægt að hafa samband við mótsstjóra til að tilkynna forföll: Anna Lilja Sigurðardóttir, bh@bhbadminton.is, 8686361
Hlökkum til að fylgjast með skemmtilegri keppni um helgina.

Comments