Um helgina tóku 25 BH-ingar þátt í Óskarsmóti KR en keppt var í meistara, A og B flokki fullorðinna. 12 BH-ingar unnu til verðlauna á mótinu. Natalía Ósk Óðinsdóttir og Jón Sverrir Árnason sigruðu tvöfalt.
Eftirfarandi BH-ingar unnu til verðlauna:
Gabríel Ingi Helgason, 1.sæti í tvíliða og 2.sæti í einliðaleik í A-flokki
Rakel Rut Kristjánsdóttir, 2.sæti í einliða- og tvíliðaleik í A-flokki
Steinþór Emil Svavarsson, 1.sæti í tvíliðaleik í A-flokki
Irena Ásdís Óskarsdóttir, 1.sæti í tvíliðaleik í A-flokki
Sólrún Anna Ingvarsdóttir, 1.sæti í tvíliða- og 2.sæti í einliðaleik í meistaraflokki
Róbert Ingi Huldarsson, 2.sæti í einliða- og tvenndarleik í meistaraflokki
Una Hrund Örvar, 1.sæti í tvíliðaleik og 2.sæti í tvenndarleik í meistaraflokki
Natalía Ósk Óðinsdóttir, 1.sæti í einliða- og tvenndarleik í B-flokki
Jón Sverrir Árnason, 1.sæti í tvíliða og tvenndarleik í B-flokki
Guðmundur Adam Gígja, 1.sæti í tvíliðaleik í B-flokki
Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, 1.sæti í tvíliðaleik í A-flokki og 2.sæti í einliðaleik í B-flokki
Erla Rós Heiðarsdóttir, 2.sæti í tvenndarleik í B-flokki
Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.
Comments