top of page
Search

12 Íslandsmeistaratitlar til BH um helgina

Meistaramót Íslands fór fram í glæsilegri umgjörð í Íþróttahúsinu við Strandgötu helgina 11.-13.september. Badmintonsamband Íslands og Badmintonfélag Hafnarfjarðar sáu um framkvæmd mótsins í sameiningu sem tókst einstaklega vel.


Als tóku 35 BH-ingar þátt í mótinu og stóðu sig frábærlega. BH átti fulltrúa í 9 af 12 úrslitaleikjum í A, B og öldungaflokkum, 3 af 5 leikjum í meistaraflokki og unnu 12 Íslandsmeistaratitla. Í fyrsta sinn í sögunni átti BH keppanda í úrslitum í einliðaleik í meistaraflokki karla en það var Róbert Ingi Huldarsson sem náði þeim frábæra árangri.


Eftirfarandi BH-ingar urðu Íslandsmeistarar um helgina:

  • Rakel Rut Kristjánsdóttir, Íslandsmeistari í einliða- og tvíliðaleik í A-flokki

  • Irena Ásdís Óskarsdóttir, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í A-flokki

  • Valgeir Magnússon, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í A-flokki

  • Orri Örn Árnason, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í A-flokki

  • Natalía Ósk Óðinsdóttir, Íslandsmeistari í einliða- og tvíliðaleik í B-flokki

  • Guðmundur Adam Gígja, Íslandsmeistari í tvíliða- og tvenndarleik í B-flokki

  • Jón Sverrir Árnason, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í B-flokki

  • Lilja Berglind Harðardóttir, Íslandsmeistari í tvenndarleik í B-flokki

  • Sara Bergdís Albertsdóttir, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í B-flokki


Eftirfarandi BH-ingar unnu silfurverðlaun á mótinu:

  • Róbert Ingi Huldarsson, 2.sæti í einliðaleik karla í meistaraflokki

  • Erla Björg Hafsteinsdóttir, 2.sæti í tvíliða- og tvenndarleik í meistaraflokki

  • Gabríel Ingi Helgason, 2.sæti í einliðaleik karla í A-flokki

  • Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, 2.sæti í einliða- og tvíliðaleik í B-flokki

  • Guðmundur Adam Gígja, 2.sæti í einliðaleik karla í B-flokki

  • Stefán Steinar Guðlaugsson, 2.sæti í tvíliðaleik í B-flokki

  • Valþór Viggó Magnússon, 2.sæti í tvíliðaleik í B-flokki

  • Lilja Berglind Harðardóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í B-flokki

  • Jón Sverrir Árnason, 2.sæti í tvenndarleik í B-flokki

  • Natalía Ósk Óðinsdóttir, 2.sæti í tvenndarleik í B-flokki

Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.

Sýnt var beint frá mótinu á Yotube rás Badmintonsambands Íslands alla helgina og er því hægt að skoða alla leiki mótsins þar.


Tugir sjálfboðaliða komu að því að gera umgjörðina í Íþróttahúsinu við Strandgötu eins glæsilega og raun bar vitni. Þökkum við þeim öllum fyrir sitt framlag og óskum jafnframt verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.


Verðlaunahafar BH í A og B flokkum. Á myndina vantar Gabríel Inga sem var í 2.sæti í einliðaleik í A-flokki.

Íþróttahúsið við Strandgötu er sérstaklega glæsilegt þegar það er komið í badmintonsparifötin.

Róbert Ingi Huldarsson komst í úrslit í einliðaleik karla í meistaraflokki og var fyrsti BH-ingurinn í sögunni til að ná þeim árangri. Stóð sig vel á móti margföldum Íslandsmeistara, Kára Gunnarssyni, í úrslitaleiknum og var á tímabili með forystu í annarri lotu.

Erla Björg Hafsteinsdóttir var í öðru sæti í tvíliðaleik í meistaraflokki ásamt Drífu Harðardóttur úr ÍA.

Þetta öfluga fólk sá um að ganga frá að móti loknu

Fleiri myndir frá helginni má finna á Facebook síðu Badmintonfélags Hafnarfjarðar.

Comentários


bottom of page